Hjá SIGN eru hannaðir og smíðaðir fallegir skartgripir sem gjarnan endurspegla það fallega og dulræna sem býr í íslenskri náttúru.

Sign er með vinnustofu og gallerý í fallegu umhverfi við smábátahöfnina í Hafnarfirði. Fyrirtækið var stofnað árið 2004 af Sigurði Inga Bjarnasyni undir nafninu Ígull.

Árið 2006 var nafninu svo breytt í Sign og hefur reksturinn vaxið jafnt og þétt á síðustu árum.