12.12.2009
Frægir auglýsa SIGN skartgripi
Nýjar auglýsingar frá SIGN hafa vakið verðskuldaða athygli að undanförnu þar sem frægir íslendingar auglýsa. Hægt er að nálgast umfjöllunina á vísir.is og sjá sjálfa auglýsinguna hér

24.03.2009
Gulleggið 2009
Verðlaunagripurinn Gulleggið sem hér er afhentur sigurvegara í frumkvöðlakeppni Innovit 2009 hefur beina skírskotun í uppruna og kraft nýsköpunar. Hvar væri unginn án eggsins, hraunið án kvikunnar og maðurinn án hugmyndanna. Gulleggið er hannað og smíðað af Sigurði Inga Bjarnasyni gullsmiði sem naut hjálpar systur sinnar Þóru Sigurþórsdóttur leirlistarkonu í Mosfellsdal. Sjá umfjöllun

06.12.2006
Ingi hannar verðlaunagrip fyrir íþróttamann ársins
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands fékk Inga til að hanna og útbúa verðlaunagrip sem ætlaður er Íþróttamanni ársins næstu 50 árin. Verkið er smíðað með vísun í náttúru Íslands sem mótað hefur þessa þjóð og hennar þrótt. Sjá nánar á vef ÍSÍ og hér